YOUCH-iđ hans Arnars :PSara Ósk Halldórsdóttir

Annað blogg þar sem Arnar skrifar allt :P fékk nú samt að vera alveg ponku memm ;) 
Okkur finnst alveg pínu óþarfi að skrifa það sem á okkar daga hefur drifið tvisvar :P hehe ... eeeeenjoooooooooyyyyy :P

Margt búið að gerast síðan síðasta blogg. Veðrið hefur samt ekkert breyst, og búið að vera slatti meira af dauða síðan síðast ^^

Ég ákvað að vera alveg ótrúlega rómó um daginn, koma skvísunni á óvart með því að leigja vespu og birtast bara algerlega óvænt hérna fyrir utan hótel. Mér tókst ekki betur upp en svo, að ég keyrði á kant þegar ég var að koma mér inn á götuna og flaug alveg rosalega á hausinn. Er síðan búinn að vera handónýtur í hendinni, með rispu á lærinu og marblett á stærð við fótboltavöll. Vespan fór víst eitthvað örlítið verr út úr þessu en ég, en það er víst hægt að laga hana á no time.... þurfti ekki að borga nema 120 evrur fyrir viðgerðina (sem mér finnst bara vel sloppið) :)
Mér tókst síðan víst bara alveg ágætlega upp með rómó hlutann, þrátt fyrir að vera ágætlega lemstraður eftir kantaknúsið :P

Fyndið samt eftirá, hvað maður á það til að reyna að rjúka í burtu þegar maður lendir í einhverju svona. Ég semsagt flaug á hausinn, lá þarna að knúsa jörðina í einhverjar 5 sekúndur... og það kemur kona hlaupandi að "Meiddirðu þig?", ég var fljótur að svar "nei nei, það er allt í lagi með mig" ... og brunaði í burtu ^^ Ég hélt reyndar að það væri að blæða úr lærinu á mér á þeim tímapunkti, en langaði bara að koma mér sem fyrst upp á hótel að kíkja á skvísuna mína.

Við kíktum síðan á jetski seinna sama dag, burruðum út á höfn á vespunni og fengum 2 stykki blaut vesti. Síðan var haldið af stað út að vatnasleðunum, fórum þangað nokkur pör saman á gúmmíbát og var Sara víst svolítið stressuð, því þetta var jú fyrsta skiptið hennar. Við vorum síðan fljót að næla okkur í eina bláa vatnasleðann og brunuðum af stað út á sjó... bara svaka gaman :)

Haha við vorum síðan víst eina parið sem var eitthvað vesen með þarna... liðið sem var á gúmmíbátnum var alltaf eitthvað að stússast í kringum okkur á meðan hinir héldu áfram hring eftir hring. Okkur tókst nefnilega að fljúga svona ofboðslega flott af sleðanum... það var eins og það væri bundið rosalega strekkt risateygja í bakið á okkur, sem kippti okkur síðan bara allt í einu af sleðanum (beint aftur á bak). Við náðum að koma okkur upp á sleðann eftir ágætis sundsprett, sem virtist aldrei ætla að taka enda... því sleðinn rak alltaf aðeins lengra í burtu. Þegar við komum síðan loksins upp á sleðann, þá tókst okkur að fljúga aftur af honum, bara við það eitt að koma okkur fyrir :D

Eftir vatnasleða ferðina, þá gleymdum við að setja á okkur sólarvörn, og hef ég eytt síðustu dögum sem karfi í fiskabúrinu uppi á hóteli :P Nei, svona án gríns, þá brann ég alveg hressilega á handleggjunum og hef verið mikið í peysum þegar ég hef farið út. Söru tókst samt einhvernveginn að sleppa við að brenna!!!8|
Þannig að, eins og þið sjáið, þá tók ég allt saman út á eina og sama deginum: mér tókst að slasa mig á vespu (rispaði lærið mitt og beyglaði hendina) og brann svona líka snilldarlega.

Í gær fórum við Sara síðan í Marineland og sáum alveg magnaða höfrungasýningu, sem ég tók að sjálfsögðu upp á vídjó. Sara fékk síðan koss frá sæljóni og eigum við mynd af okkur þremur saman :) Við gátum síðan spjallað við African Grey fugla sem fá að vera lausir innan risastórs húss (sem er hálfpartinn eins og gróðurhús, nema með rimlum í staðinn fyrir gler).
Þetta kveikti samt á smá söknuði til fuglanna okkar:^)

Eftir ferðina í Marineland, þá ákváðum við að skella okkur í Drekahellana, sem einhver félagi minn benti mér á að skoða. Ég verð að segja alveg eins og er að þetta var eitthvað það allra flottasta sem maður hefur séð... bara EVER. Maður byrjar á að labba alveg ágætis vegalengd niður á við, þar sem maður getur séð allskonar mismunandi lögun á dropasteinum. Síðan kemur maður neðst í einhverskonar rými, þar sem við fengum að sjá sýningu. Þá er slökkt á öllum ljósum og sigla upplýstir bátar framhjá, með píanóleikara og 2 fiðluleikurum. Eftir tónleikana, þá gerðu þeir einhvern svona effect eins og þegar sólin er að koma upp á morgnana.

Eitt sem fór samt alveg óóótrúlega í taugarnar á okkur. Það eru skilti fyrir utan hellana sem stendur á að það sé bannað að taka myndir og bannað að vera með myndatökuvélar þarna inni. Við ákváðum að vera sniðug og skila okkar græjum í bílinn áður en ferðin hæfist, en komumst síðan að því að við hefðum bara allt eins geta sleppt því, því það voru alveg ófáir einstaklingar í hópnum sem voru smellandi af í gríð og erg (með flassi). Enginn starfsmannanna sagði neitt við því. Okkur langaði bara mest að ná í vélarnar okkar, koma tilbaka og segjast hafa gleymt að taka myndir og rífast og skammast þegar okkur væri bannað að taka myndir.

Anywho, þá er lífið hérna samt alveg æðislega ljúft... gott veður, góður matur, góðir drykkir... en verð nú alveg að viðurkenna að þetta er farið að verða asskoti dýrt hérna :P

Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili... Smell ya later! (Þefa þig seinna) :D

Dauđa bloggiđ - múhahaha (hans Arnars) :PSara Ósk Halldórsdóttir

Hæhæ... Við fórum með fartölvuna niður í lobby og fengum bara password til að komast inn á netið og ekkert mál :D kostar ekki neitt!! Arnar fékk að blogga í þetta skiptið í tölvunni (getum sem betur fer notað íslenska stafi líka núna). Ég fékk að pitcha inn einstaka sinnum í bloggi þessarar elsku og því fékk ég að stela því og henda hérna yfir ;) EEENJOOOOOYYYYY :P

Jæja!

Þá er maður bara í útlandinu, búinn að vera hérna síðan 25.jún og kem ekki aftur heim fyrr en 16.júl.

Margt og mikið búið að gerast síðan maður kom hérna út, búinn að vera að drepast úr hita, fara í go-kart, drepast úr hita, fara í vatnsrennibrautagarð, drepast úr hita, drepast úr hita og drepast meira. Eins og þú/þið (ef það eru einhverjir eftir) sérð/sjáið, þá er búið að vera mikið um dauða hjá mér, er eiginlega eins og köttur (stígvélaði kötturinn... eða eiginlega sandalakötturinn). En já, svona að öllu gríni slepptu, þá er búið að vera rúmlega 30 stiga hiti síðan við komum, glampandi sól og bara alveg þrusugaman... og dauði :)

Erum alveg 9 í hópnum, þó við höfum kannski ekkert alveg verið límd við hvort annað allan tímann. Ég og Sara erum sem dæmi búin að vera slatta á röltinu út um allt hérna, búin að smakka búrgerinn hérna (Burger King) ... fundum síðan loksins Currywurst eftir að hafa prófað 3 mismunandi útgáfur af pulsunni.

Höfum fengið að prófa mismunandi pizzur, hamborgara og steikur... og fundið marga góða staði. Fengum að upplifa ströndina um daginn, vorum þá búin að kaupa svaka fínan og stóran gúmmíbát sem ég og Sara dugguðum um í sjónum á. Komumst reyndar að því að við hefðum þurft að kaupa árar, því við þurftum heldur betur að hafa fyrir því að busla okkur áfram með höndunum. Vorum við það að brenna duglega í andlitinu, þannig að við skelltum okkur á eitt stykki RISA gleraugu og stóra og hallærislega hatta... fórum síðan aftur niður á strönd, alveg handviss um að brenna ekki meir (og það virkaði).

Go-kart ferðin mikla: Ég, Sara og Böddi bróðir hennar skelltum okkur einn daginn saman í go-kart. Ég og Sara höfðum aldrei farið í go-kart áður, þannig að við ákváðum að vera bara á miðlungs góðum körtum (champion körtur), og vorum við öll með mismunandi áform á brautinni. Böddi var ákveðinn í að hringa mig, ég var harðákveðinn í að láta hann ALLS EKKI hringa mig... og svo var Sara allan tímann að passa að halda sig inni á brautinni (enda sýna myndirnar okkar áformin vel). Vil taka það fram, mér og Söru tókst að halda okkar áformum, en Böðvari gekk nú samt líklega best :D

Við Sara fengum síðan að halda á uglu í vatnagarðinum, hef bara líklega aldrei haldið á jafn svölum fugli... næst verður það að vera örn :D

Heyrðu já, ég átti víst ammli í gær... og fékk meira að segja vínflösku og kort í afmælisgjöf frá hótelinu. Ég átti svo alls ekki von á því að fá eitt né neitt, þannig að ég setti upp hissadúkku svipinn þegar við komum aftur upp á hótelið seinna um kvöldið :P

En já, ætla ekki að halda ykkur límdum við skjáinn heilu dagana við lestur hérna... langaði bara að segja:

ÉG ER LÍKA Á MALLORCA  NANANANANA :P

VIIIIIVA MALLORCAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAASara Ósk Halldórsdóttir

Hae hae! Madur er a Mallorca nuna i solinni og svaka stud! Haegt er ad kaupa tima i tolvum og setur madur klink i einhvers konar countdown og svaka stud. Vid vitum ekki til tess ad tad se net uppi i herbergi tess vegna hefur madur ekkert sett neitt inn :)

Eg nenni ekkert ad standa i islensku stofunum tvi tad kemur bara "ñ" tar sem ae er og svoleidis ;)

Erum buin ad fara i gokart og smakka mismunandi tegundir af currywurst (eins og margir vita er tetta paradis tjodverjans) og fengum ad profa ad tynast i hofudborginni Palma i dag!
Mikid er gert af bordtennis og erum vid mamma nyjar i tessum leik medan Boddi, Arnar, pabbi og Gunni spila eins og pro!

Hotelid er aeaeaeaeaeaedi!!! :D

ps. uu tad er buid ad vera 30 stiga hiti daglega!! (circa)

Vonum ad allir hafi tad gott a klakanum... ohh hvad eg sakna tess ad hafa solina langt fram eftir nottu... *andvarp*

hasta luego!
hasta mañana!
adios!

ciao :p

Mallorca ferđSara Ósk Halldórsdóttir

Jahá.... þetta blogg er búið að vera dáldið lengi dautt!!


En núna er tilefni til að henda inn nokkrum orðum... við erum að fara til Mallorca!!

Ég og Arnar rúllum saman og höfum íbúð fyrir okkur :)  - auk okkar verða:

Mamma og pabbi, Böðvar og Sigrún (systkini mín)

Gunni frændi (bróðir mömmu) og kona hans og Elsa dóttir þeirra :)



Þannig að þetta verður fjörug ferð með fullt af skemmtilegu fólki :D
Ætla alveg að sjá hvort að það sé ekki nettenging þarna úti og ef við erum svo heppin þá kannski fleygir maður inn orðum hérna inn á milli :)

Flýg út núna á miðvikudaginn og áætlaður komu tími til baka er 16 júlí :) 3 vikur beibí!

Jæja, ætla að fara að koma mér í rúmið, ýmislegt sem þarf að gerast á morgun ;)

adiós!

Sara Ósk Halldórsdóttir

Ég er flutt! Ég er flutt!

WOOP WOOP WOOP

Það er bara brjálað gaman að vera með sína eigin stofu sem að þú setur upp sjálfur :D ...
Raðar SJÁLFUR í skápana ... þetta er bara snilld !!

Ég og Arnar gætum ekki verið hamingjusamari en akkurat núna, nýtrúlofuð og ný komin í litla hreiðrið okkar Ullandi
Við eigum heimasíma, erum að fara í Og1 ... með brjálaða nettengingu og risa sjónvarp :D
Cartoon Network, Animal Planet og fullt af öðrum stöðvum fylgja með í hússjóðnum Hlæjandi

bara biluð hamingja Glottandi

fólk má endilega kíkja í heimsókn og ef það bjallar í mig gæti ég meira að segja boðið ykkur í mat Ullandi

love'you all Glottandi

SÓH

FLUTNINGARSara Ósk Halldórsdóttir

Já gott fólk núna fer að styttast í flutningana hjá okkur Arnari. 

1. september fáum við íbúðina afhenta. Sem þýðir að það verður allt brjálað að gera í að mála og flytja allt draslið og svona. 
Okkur er auðvitað farið að hlakka alveg svaðalega til !!

Það er mjög gott fólk búið að vera að bjóðast til að hjálpa okkur að flytja og erum við mjög þakklát :)

Auðvitað má samt alltaf nota auka sett af höndum þannig að ef einhver er mjög svangur og langar í ókeypis mat og drykk, sem í þessu tilfelli væri pizza og kók eða grillmatur grillaður með kolagrilli :D þá endilega látið vita og við munum að sjálfsögðu hafa pláss fyrir ykkur ;) hehehe ... 

--------

Kúrí fór norður um daginn og um leið og við vorum búin að skilja hana eftir tjúllaðist hún algjörlega og fór að bíta fólk :S ... við fengum hana auðvitað strax aftur í hausinn og um leið var hún orðin ljúfasta grey ... þannig að við ákváðum að það væri nú bara best fyrir hana að vera hjá okkur. 
Óliver var farinn að geta flogið heilmikið sem gerði mér lífið mjög erfitt þar sem hann er yfirleitt ekki tilbúinn að vera hjá mér (er fuglinn hans Arnars út í gegn). Við létum snyrta hann, svo af því að hann getur ekki flogið er hann besti vinur manns þegar hann dettur í gólfið :P ... Svo ákváðum við bara að vera sniðug og létum snyrta Kúrí daginn eftir að við fengum hana :)
Púki er officially byrjaður á fullorðinsfæði :D my bebe is getting big !!
Og að lokum Amor, hann verður fallegri með hverjum deginum og er orðinn algjört rassgat :D get ekki beðið eftir því að hann byrji að tala :D

---- that's all folks ;)

SÓH

Margt ađ gerast!Sara Ósk Halldórsdóttir

Jahá ... alveg svakalega mikið búið að vera að gerast...

Ég og Arnar vorum að trúlofa okkur Hlæjandi
Við höfum verið að segja fólki jafn óðum og við hittum það og ekkert verið að hringja spes í fólk, þannig að vinsamlegast verið ekki móðguð ef að við vorum ekki búin að segja ykkur þetta "in person".

Við vorum að skrifa undir kaupsamning á íbúð í gær Hlæjandi
Við erum að fara eignast okkar eigin íbúð !!
Þannig að fólk má óska okkur til hamingju með að vera orðin blönk!! ... En fyrstu tveir mánuðirnir verða HELL Ullandi En hvað gerir maður ekki fyrir það að eiga sitt eigið heimili ?

Kúrí er að fara að eignast nýtt heimili fyrir norðan á Akureyri. Ég og Arnar vorum reyndar að heyra af því að ef að ástarfuglarnir taka illa í aðskilnaðinn gætu þeir farið í hungurverkfall. Sem þýðir að við gætum reynt að semja um að Óliver fengi bara einfaldlega að fylgja með... En við ætlum fyrst að sjá hvort að báðir fuglarnir höndli aðskilnaðinn.

Arnar og ég erum komin með snemmbúna innflutningsgjöf... sem er í raun og veru bara frá okkur sjálfum...
En það mun vera eitt stykki African Grey fugl. Það er talið að fuglinn sé kvenkyns en er að fara í greiningu núna næsta mánudag. Við erum búin að finna nafn á "skvísuna" og heitir hún Lady. Að sjálfsögðu breytum við um nafn ef svo kemur í ljós að þetta er karlkyns fugl. Hún er algjör kelirófa og er endalaust að biðja um smá klapp Ullandi
Og þegar ég bý til kvöldgrautinn handa þessu 4 mánaða kríli fer hún alveg að tísta og blístra af ánægju Hlæjandi
Fyrir þá sem hafa séð Sin City þá datt okkur í hug að nefna hana Lady útaf konunni sem er í rauða kjólnum í Sin City. Þar sem að okkur finnst pínu cool þegar það er hent inn rauðum lit í svart hvíta mynd. Stélið á Lady er náttúrulega eldrautt og restin er allt frá hvítu yfir í dökk grátt... og ég segi náttúrulega af því að allir african grey eru svoleiðis... alla veganna eftir því sem ég best veit. Hægt er að fletta uppi "African Grey" í myndum á google ... En við erum að vinna í því að koma með myndir af Lady... Það kemur um leið og við finnum snúruna til að tengja myndavélina við tölvu!

Hin dýrin eru þvílíkt forvitin um þetta náttúruundur sem var að koma inn á heimilið. Ástarfuglarnir neita að vera í eigin búri og hætta frekar á það að hanga í búrinu hennar Lady og fá kannski eitt bit eða svo! Annars er Lady nokkuð ljúf við þau, það er aðallega þegar þau troðast inn í búrið til hennar sem að hún ýtir við þeim en leyfir þeim svo sem að sitja ofan á því. En það er langt frá því að vera nóg fyrir Kúrí og Óliver og nota þau hvert tækifæri sem að Lady stígur út til að hoppa inn og borða matinn hennar, drekka vatnið hennar ... og í gær gerðust þau jafnvel svo kræf að baða sig í drykkjarvatninu hennar!!
Púki er jafn forvitin og þau hin. Hann þefar af Lady við hvert tækifæri og reynir jafnvel að ýta aðeins við henni þegar hún er á uppáhalds staðnum hans (upp við hálsakotið á mér). Svo er Púki reyndar mjög hrifinn af grautnum hennar Lady og hnetunum sem hún á að fá a.m.k. eina af á dag Ullandi Lady hefur eitthvað opnað gogginn í áttina að honum en við vitum ekki alveg ennþá hvort það er til að kyss'ann eða bít'ann. Í bili þá stoppum við það bara áður en hún nær nokkuð að gera ... just in case! Enda ekkert smá goggur á þessu! Hún er full fær um að rispa mann það illa að það sé eins og maður hafi skorið sig á blaði, svo maður veit ekki hvað hún gæti gert við Púka.
Hún beit aldrei mikið og voru það einungis hræðslubit þegar maður var að flytja hana heim, nokkuð eðlilegt að hún verði hrædd í svoleiðis flutningum og er hún alveg hætt þessu núna. Maður fær bara ljúfa kossa og fleira í þeim dúr Brosandi

Þar með held ég að það sé upp talið Ullandi En mér finnst þetta nú andskoti nóg í bili Glottandi Alveg meira en nóg að gera bara með allt þetta!

Núna þarf ég að fara að reka Kúrí og Óliver úr matardallinum hennar Lady áður en þau klára matinn hennar!

SÓH

VÚB VÚB - ÍBÚĐ +Sara Ósk Halldórsdóttir

VÚB VÚB VÚB VÚB!!!
WOOP WOOP WOOP WOOP!!!

Þetta erum við Arnar að vúbba saman Ullandi En ég vil skrifa orðið "vúb" á meðan hann vill nota "woop" ...
Þetta er sem sagt eitthvað sem var notað mikið í Þýskalandi Brosandi jibb, við fórum til Þýskalands!
Og fyrir fólk sem vill tón dæmi þá bendi ég á Zoidberg úr Futurama!

En það sem er aðal í dag er sem sagt að okkur langar að reyna að bjóða í íbúð Hlæjandi
78,7 fm og er hún algjör draumur í dós Ullandi Hún er reyndar í Keflavík, en þar er líka verðið nær því að vera í lagi Brosandi

Sjáum til hvort að ég sé að fara að verða nógu dugleg að blogga... vonandi kemur blogg um Þýskalandsferðina fljótlega Ullandi hehe.. hefði gaman af því að skrifa um hana og rifja aðeins upp í leiðinni ... mikið búið að gerast síðan þá...

------------------------

En á öðrum nótum, þá var ég að missa ömmu mína hana Ernu Helgadóttur. Jarðaförin verður á morgun og á ég von á því að það verði minningargreinar í mogganum á morgun.

------------------------


SÓH

Húsnćđi óskastSara Ósk Halldórsdóttir

Húsnæði óskast ...

... á höfuðborgarsvæðinu. Þarf annað hvort að vera tveggja herbergja (eitt herbergi, stofa, baðherbergi, eldavél og þvottavél),
eða MJÖÖÖÖÖÖG stórt herbergi með aðgang að baðherbergi, eldhúsi og þvottahúsi.

Mjög reglusöm og reyklaus, skilvirkar greiðslur. Greiðslubyrði 70-80 þúsund. 

Allar aðrar upplýsingar fást í síma 8448976.

Sara Ósk

ÓliverSara Ósk Halldórsdóttir

Enn eitt bloggið ...

Fjölskyldumeðlimur var að bætast við. Heitir hann Óliver og er ástarfugl. Hann og Púki nota núna sömu dýralands síðuna en urlinu hefur verið breytt í http://grallararnir.dyraland.is .

Annars hefur voðalega lítið verið að gerast. Ég bara ennþá hjá Öryggismiðstöð Íslands og lífið gengur sinn vanagang. Það hlýtur nú að fara að koma með sumrinu að maður fari að vera meira "outgoing" Ullandi
Þ.e.a.s. þegar maður vaknar upp úr þessum vetrardvala.
En endilega ef að þið hafið ekkert betra að gera getið þið athugað á nýjum myndum af Púka og svo af nýja fjölskyldumeðliminum. Púki og Óliver eru reyndar ennþá að kynnast og ná að vera á sama staðnum án þess að starta slagsmál þannig að ekki eru enn komnar myndir af þeim tveimur saman Glottandi

SÓH

Dýra-, barna og bloggland !

Auglýsing

Leikur dagsins

Leit

Könnun

Í hvađa skóla ertu?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...