útilega dauđansSara Ósk Halldórsdóttir
Á laugardagsmorgun kom hann Arnar minn í bæinn
með Púka litla 
En þar sem mamma er með ofnæmi fyrir Púka
var það svona vitað mál að a.m.k. Púki gæti ekki verið inni um helgina... Við að sjálfsögðum vorum búin að finna lausn á þessu
.... TJALDA ! ...það var bara keypt nýtt tjald á 3000 kall, vindsæng á ... eitthvað sem ég man ekki ... og rafmagnspumpu á 1600

Rafmagnspumpan ætlaði þá að vera eitthvað vesen ... fyrst þegar við komum fyrir utan heima með allt draslið litum við ofan í kassann með pumpunni ... nema að það vantaði pumpuna
... við brunum aftur til baka og skiluðum kassanum og fengum okkur nýjan (checkuðum hvort pumpan væri ofan í) fórum svo aftur heim .... neeeeii.... þá virkaði pumpan ekki
... við aftur niður eftir og fáum 3ja kassann og prófuðum þá pumpu meira að segja í búðinni !! ... And finally we got it right !
Já og keyptum líka pínulitla geeeðveikt sæta skál handa Púka til að drekka úr

En við vorum með alveg tvær sængur og flísteppi í tjaldinu þannig að okkur tókst alveg ágætlega að halda á okkur hita og svona
.... það var helst þegar maður þurfti að fara fram úr "rúminu" að maður var gjörsamlega að frjósa ... 
En að öðru leiti gekk það nokkuð vel

En við vorum sem sagt langmest í tjaldinu, næst mest í Blinky (bílnum) og restin var eiginlega bara flakk
... við fórum auðvitað á klósettið bara inni og fengum okkur að borða inni (fengum dýrindis læri)... en það er ósköp lítill tími sem fer í það ... Kíktum til Höllu og ætluðum að hafa video kvöld... en það voru sem sagt ég, Arnar og Halla ... en Bambi leit eitthvað við í byrjun en var ekki til lengdar. Horfðum á most brilliant stand up ever
... og svo var einhver voða spennó mynd sem Arnar ætlaði að bjóða okkur upp á .... neeeeeii ... hann heldur því fram að það hafi verið 2 mínútur búnar þegar við vorum BÁÐAR farnar að hrjóta ... 
En myndin var alveg gett spennandi í byrjun, ég man það alveg
... en við Arnar vorum náttúrulega ekki búin að fá nema 2 tíma svefn yfir sólarhringinn ...Sunnudaginn vöknuðum við klukkan 10 !! ... Við það að Púki var hoppandi og skoppandi
.. ohh það var svo mikið æði að sjá hann svona kátann og glaðann
.... þannig að sunnudagsmorguninn fór í það að leika við Púka og hlæja MEÐ honum 
Fengum hambó og franskar í kvöldmatinn sem var bara mjög gott

Ég kláraði að skúra Gúmmívinnsluna ... alveg ógó dugleg... en strákarnir voru svo þreyttir að þeir voru lagstir inn í tjald
... svo skreið maður bara undir heita sæng ... mhmm
notó !! ... svo náttúrulega til að toppa allt var grenjandi rigning
... að sjálfsögðu ekkert betra en að sofna í tjaldi við rigninguna 
Arnar fékk poloinn aftur ... húddið var eitthvað skrýtið, lá ekki jafn vel að bílstjóramegin or sum ... þannig að eftir að hann var búinn að vera í 3 vikna viðgerð þurfti hann að fara aftur í morgun ... en þeir voru víst enga stund að laga málið og því gat Arnar farið aftur á elsku litla polonum sínum

Og þar af leiðandi fékk ég Blinky minn aftur
jibbí !! ...útileigu dauðans er hér með lokið

SÓH
Velgengnisvikan! - fimmtudagurSara Ósk Halldórsdóttir
Jiii minn !! ... Það er aldeilis að maður er búinn að vera busy ! ....Pabbi (Hreiðar) fékk botnlangabólgu á laugardaginn ... fór upp á fjórðungssjúkrahús og var sendur heim ... fór aftur á sunnudaginn og þá áttaði heimilislæknirinn okkar sig á ástandinu og hann sendur beint í uppskurð ...
Hann var rétt svo kominn heim á þriðjudaginn og á batavegi þegar hann fer svo seinna um kvöldið aftur upp eftir með lungnabólgu !! ....
En við fengum hann svo aftur heim í morgun .... (fimmtudegi)
En ég er sem sagt allan þann tíma búin að vera á sólarhringsvakt hjá Öryggismiðstöðinni...
----------------------------------------------------------------------------------------------------
Mánudaginn byrjaði velgengnisvikan og þá bæði "tímar" sem maður þurfti að fara í þar sem manni var kennt á tölvukerfið, bókasafnið og allan þann fjanda

Mánudagskvöldið var grillað í Sólborgargarðinum or sum .... þar var víst ratleikur og eitthvað annað sem ég missti af, vegna þess að ég var að klára vakthringinn... en þegar ég mætti þá náði ég bara að blanda geði við Önnu og Alenu og einhverja fleiri

Þriðjudagskvöldið var a.m.k. félagsvísinda og lagadeild boðinn matur á Strikinu
... svo komu hinar deildirnar og joinuðu
... ég og Alena vorum organdi úr hlátri næstum allan tímann
... alla veganna var geeeeeeeðveikt stuð!! Miðvikudagskvöldið var í boði að fara í bíó á Pirates of the Caribbean fyrir 600 kr og fá popp og kók með
... en ég reyndar komst ekki á það
... (Var líka að taka Val með mér í vakthring svo hann geti unnið á móti mér
)Fimmtudagskvöldið er frí ... og ég fæ reyndar frí frá skólanum bæði fimmtudag og föstudag líka
... (Valur fór vakthringinn og ég var svona til hliðar)
En föstudaginn mætum við klukkan 14 upp í sólborg hjá íslandsklukkunni... hlustum á formann FSHA og förum svo upp í Kjarnaskóg
grillum þar og sjálfsagt verður eitthvað gott að drekka líka
.. svo klukkan 21 verður Pub Quiz í Sjallanum
... Klukkan 24 opnar svo sjallinn ef maður vill vera á diskóteki beint á eftir
....En ég ætla að vera búin að sækja bílinn hans Arnars á morgun
Hann verður tilbúinn og svaka fínn og flottur 
(Valur fær að fara einn vakthringinn og ég verð í símasambandi
)En ég er orðin svo búin á því
Fer svo mikil orka í það að vera félagslyndur
.... og þótt að það sé dauðasynd að ditcha í svörtum fötum næsta laugardag þá verð ég að gerast sek um þá dauðasynd... sökum þreytu
og L-E-T-I 
Arnar kemur um helgina !! Vúhú
... og ef allt gengur að óskum hjá okkur þá fær Púki litli að koma með honum norður
.... SÓH
*djammidjamm*Sara Ósk Halldórsdóttir
Ég ætla að byrja á að nefna það .. "að djamma" þýðir ekki að verða blindfullur niðri í bæ !! ..."að djamma" þýðir að fara niður í bæ og dansa af sér rassgatið
.. og það er það sem ég gerði í gær 
Ég er komin með nýjan og mjög flottan síma sem hefur marga skemmtilega hæfileika
og kom hann sér mjög vel á djamminu í gær ... tók einhverjar myndir og FULLT FULLT af videoklippum 
Ég og Halla byrjuðum á því að skunda niður á Dátann og átti dj Lilja að vera þar, en þar var bara einhver dúddi sem átti að vera að leysa af
... og ég og Halla vorum að vera picky á tónlist ! ... Meina sure, ágæt tónlist sem hann var að spila, en mig langaði einfaldlega ekki að dansa við hana ... enda ég bara orðin skrýtin, áður fyrr gat ég dansað við hvað sem er !! ... Ooooooooog hann var að vera dáldið einhæfur í tónlistinni !! ...
aaaaanyways ... Við Halla vorum þar fyrir félagsskapinn
... Hitti aftur Sigga og Þorstein sem voru með mér í bekk í grunnskóla .. í ca. 10 ár!!
og þeir voru sko ekkert að fara að þekkja mig neitt
Stína mín þurfti að segja þeim hver ég er ... hehe ... og Þorsteinn og Freyr félagi þeirra hafa mjöööög "creative dancing style"
sem ég á, á videoklippu 
Þegar lokaði á Dátanum ætluðum við að fara með Stínu á Café Amor en sáum hvað það var geggjað stuð á Kaffi Akureyri
Við að sjálfsögðu þangað !! ... Og þar var tónlist sem að við Halla vorum að fíla í tætlur !! ... Enda dönsuðum við stanslaust (fyrir utan pissupásur) alveg þar til klukkan 4
En þá lokaði Kaffi Ak og við skunduðum áleiðis heim ... En ég á líka alveg helling af videoklippum af Kaffi Ak
Sem eru alveg brilliant ... og auðvitað kynntist maður fullt af fólki ... ég kynntist meira að segja finnskri stelpu sem heitir Ellen (ef ég heyrði rétt) og vinnur hún á Höfn, en var á Húsavík or sum og kom þaðan til Akureyrar ... speeeeeeeeeeeees ...
En Stínan mín er bráðum að fara að flytja til Danmerkur þannig að ég er búin að lofa henni góðu skralli einhverja helgina sem hún er í fríi frá vinnu
... en mér skildist að ég og Halla hefðum bjargað lífi hennar þegar við komum fyrst á Dátann 
Fyrir þá sem langar til að sjá videoklippurnar eða myndirnar hef ég þetta að segja: "Drullið ykkur með næst!!!"
.. híhíhí ... neinei ... bara djók 
Ég verð að sjá hvernig það gengur að troða þessu inn á tölvuna ... en ég er nú ekki bjartsýn á að koma þessu á netið
... ég er svoddan stelpa í mér 
pís át
SÓH
*klipp*Sara Ósk Halldórsdóttir
Ohh já .... ég fæ sko að sjá bæði Arnar og Púkann næstu helgi
Á morgun fer ég í klippingu
Það verður aaaaalgjör snilld
... ég hef sem sagt ákveðið að gefa Guðnýju lausan tauminn
og ég á eftir að verða ómótstæðileg
híhí .. Skal sjá hvort að ég geti ekki dumpað einni mynd af nýja lookinu hérna inn svo seinna 
Fer með flugi á hádegi á laugardaginn ... dobbla Hauk frænda til að sækja mig á flugvöllinn ... svo þarf ég að double dobbla hann og fá hann til að skutla mér í apótek ... oh já... ég er víst að fara með massa af lyfseðlum til að finna mjööööög sjaldgæft lyf !! ... það sem sagt kláraðist á Akureyri
hehe .... Þetta er í raun og veru næst seinasta næturvaktin mín
Þar sem ég ætla að vera búin að skúra fyrir miðnætti á föstudagskvöldið og leyfa pabba að sjá um restina af vaktinni
Þá verð ég vel úthvíld þegar ég flýg svo suður 
Og þá er ég byrjuð á kvöldvöktum
... Þessi færsla er aðalega til að láta vita að ég sé ekki DAUÐ
en að sjálfsögðu blogga ég svo aftur um helgina sem er framundan ... en helgin verður fuckin snilld 
síja

SÓH
*hnuss* og *hneyksl*Sara Ósk Halldórsdóttir
Ég persónulega hef ekkert á móti ölkum .... upp til hópa er þetta fínt og flott fólk sem er að díla við sjúkdóm ... ég verð reyndar að viðurkenna að ég er ekki jafn hrifin og virkum og óvirkum ölkum ...Óvirkir alkar eiga það nefnilega til að haga sér eins og fífl, og það líkar mér ekkert alltaf rosalega.
Ég skil ekki hvernig manneskja sem hefur verið óvirkur alki í kannski 20 ár ákveður að falla ... og það skal enginn segja mér "það velur enginn að falla, það bara gerist" því að ég veit þó það mikið að manneskjan hefur alltaf VAL um að segja nei takk ...
Fólk dregur ekki alka út á lífið opnar kjaftinn á honum og hellir oní hann, þannig að einhvern vegin gerist það ...
Hvernig getur manneskja sem hefur fleiri fleiri ár verið óvirkur og allt gengið í haginn, búinn að koma sér vel fyrir með vinnu, heimili og fjölskyldu allt í einu ákveðið að klúðra öllu með því að byrja að drekka aftur ? ... og þá geri ég svona ráð fyrir því að fólk sé almennt ekki það stupid að hugsa "hey, búinn að vera óvirkur í 20 ár akkurat í dag, best að halda upp á þetta og fá sér einn öllara" ... fólk er einfaldlega ekki það stupid ...
oh jæja, sumt er okkur einfaldlega ekki ætlað að skilja kannski ....
--------------------
Það verður CRAZY að gera um verzló hjá okkur í Öryggismiðstöð Norðurlands ehf.... Ég fæ alveg 3 tímum lengri vaktir a.m.k. og það verður alveg tvöfalt meira að gera yfir vaktina en hefur verið

Ég vil meina að það sé ágætt... ég fæ þá ágætis laun
... En sumarskólinn byrjar núna strax eftir helgi, HELD ég
og þar sem pabbi ætlar að kíkja þangað þarf ég að vera ein með Öryggismiðstöðina frá þriðjudeginum til fimmtudags ... ég að sjálfsögðu lifi það af og fæ bara meiri monní
Næstu helgi fer ég svo suður að hitta Arnar
og Púka !!
Sem verður að sjálfsögðu megastuð eins og alltaf
Myndir sem ég var að kaupa í gær og eru alveg geeeeeeeeeeðveikt góðar eru
Crash -- alveg SVAKALEG mynd, ætti að vera skylduáhorf

Memoirs of Geisha -- fannst hún algjört æði

--------------------
Sigrún hélt upp á afmælið sitt í gær og fór það fram á Greifanum... Greifinn stóð alveg fyrir sínu og var alveg megastuð á litlu skvísunum
Hún á nú samt afmæli á morgun en þetta hentaði betur upp á það líka að mamma væri ennþá í fríi en hún byrjaði að vinna aftur í gær eftir mjööög langt og gott sumarfrí 
Ég gaf Sigrúnu himnasæng og fiðrildi sem hægt er að festa á himnasængina og er þetta alveg GEEEEEEEEÐVEIKT flott og var auðvitað sett upp í gær
(ég á reyndar mömmu örlítið að þakka þarna, en hún vissi að sjálfsögðu hvað Sigrún vildi mest og best á meðan ég var nú hálf clueless
)"ég fíla að dilla dilla, ég fíla að dilla dilla"
er lag gærdagsins
þið afsakið en ég er bara ekki ennþá farin að sofa þannig að það er eiginlega miðvikudagur hjá mér ennþá 
En þá er þetta komið hjá mér í bili ... enda orðin alltof löng færsla

SÓH
"löng helgi"Sara Ósk Halldórsdóttir
Jáhh ég var svaka dugleg og skellti mér bara eftir vinnu á föstudagsnóttu suður ... eða með öðrum orðum á laugardagsmorguninn
keyrði alveg frá klukkan 5 um morguninn og þar til klukkan 9:30 og þá var maður kominn alveg uppgefinn í Mosgerðið
... Mér tókst að fela það svo vel að planið væri að koma suður að Arnar var alveg steinhissa
... svo var maður eitthvað svo tense að ég var ekkert að ná að sofna eða neitt ... Þannig að eitthvað uppúr hádegi skríðum við fram úr og þá hafði ég samband við ömmu og afa og ætlaði að kíkja í heimsókn ... en nei, þá kom í ljós að ég ætti að mæta í afmælisveislu eftir klukkutíma!!
Það var verið að halda upp á afmælið hans Almars bróðurs og að sjálfsögðu dró ég Arnar bara með mér
og hann stóð sig alveg eins og hetja
Fór svo með Hauk frænda og Böddu í útskriftarveislu og passaði pínu fyrir þau um kvöldið þar sem að það var alveg ár og öld síðan þau fóru eitthvað út saman

Sunnudaginn fórum við að kíkja á Trítlu, Púka og Bumbulíus, þótt að við værum auðvitað aðalega að heimsækja Púka
Þeir stækka nú eitthvað
Svo hjálpaði ég Arnari að gefa þeim að borða (drekka) þar sem Trítlar hleypir þeim ekki á spena lengur
hún meira segja virðist reka Bumbulíus út á gólf stundum þegar hún er í vondu skapi ! ... Anyways .... þeir voru duglegir að drekka hjá okkur og svo vorum við bara að njóta þess að hafa þá í hálsakotinu okkar
ohh, það er eeeekkert betra en að hafa pínulítinn hvolp í hálsakotinu sínu !! Þegar Arnar skrapp í vinnuna fór ég með mat heim til ömmu og afa, chillaði þar í smá stund...
var ógó góð við Arnar og færði honum pítu og appelsín
kíkti svo til Hauks frænda og Böddu og á milli þess sem að þau þurftu að hlaupa á eftir krakkagríslingunum chilluðum við og spjölluðum... Arnar bættist svo í hópinn og alls konar skemmtilegar sögur komu fram
bara spurning hvort að ég geti notað þær gegn fólkinu
híhí ... neinei, ég er ekki vond 
Mánudaginn fékk ég breakfast in bed
Snilldar Ommelettur a la Arnar
þær voru alveg geheðveikt góðar *slef* ... en svo var gerð innrás af systur hans Arnars, Söndru
og mánudagurinn fór í það að stússast með henni, litlu prinsessunni hennar Emelíönu og Sverri, kærastanum.... svo kynntist ég auðvitað Ingu vinkonu Söndru ... Og það gerðist kraftaverk, ég fór actually í Kringlunna
og auðvitað allt Söndru að þakka
en hún átti erindi þangað
... Svo var Sandra alveg ýkt góð við mig og gaf mér tvær esprit skyrtur og geðveikt flottann bol ... hún alveg æðislegust og fékk koss fyrir það

Svo var bara brunað heim á þriðjudeginum.... *andvarp*
ég kemst ekkert aftur suður fyrr en einhvern tíman eftir verzló .. ég hlýt að lifa það af

ég er tilbúin að borga einhverjum fyrir að búa til klefa sem maður stígur inn í og segir "Reykjavík" og *púff* maður birtist í Reykjavík ... ef einhver treystir sér til að búa til klefann, vinsamlegast látið vita í commentum
bloggibloggSara Ósk Halldórsdóttir
Hugsa um það a.m.k. einu sinni á dag að ég þurfi nú að fara að blogga eitthvað en af því að mér finnst ég alltaf þurfa að hafa svo langan tíma aflögu til þess að blogga verður aldrei neitt af því
Allaveganna ...... seinasta helgi var alveg ágæt... fór eitthvað á djammið á laugardeginum og rakst maður nú eiginlega á alla

það liggur við að mig langi að óska Tryggva til hamingju með að hafa þekkt mig á djamminu, hef rekist á hann nokkrum sinnum á djamminu og hann aldrei þekkt mig
ég var bara með honum í skóla í 10 ár
.... annars var ég mestmegnis með henni Höllu og Stínu minni ... sá nú reyndar þónokkuð af Bubba og Halla líka... Sjallinn var ágætur, alveg ágæt tónlist og svoleiðis, en mér fannst það ekkert meira en ágætt... og þar sem Halla var alveg sammála mér vorum við ekkert að endast alla nóttina þar
enda þurfti hún líka að mæta í vinnu daginn eftir ...Ég komst að því að ég er algjört push over þar sem að eftir að hafa skutlað Höllu heim lenti ég í því að vera 3 fuckin tíma að skutla einhverjum stráklingum heim!! ... Þeir voru alveg ágætir og svoleiðis
en fyrr má nú vera brazið ! ...Reyndar ætlaði Robbi að bjóða mér upp á coke cola og á nammibarinn fyrir skutlið
en ég er í svo miklu aðhaldi að ég má ekki við því
hehehe .. *hóst*Rúmið var alla veganna orðið langþráður staður þegar ég komst þangað

Sunnudaginn skrapp ég líka á Superman með Höllu og er það ágætis mynd bara...
það voru bæði klisjukennd atriði og dramatísk atriði ... en áður en fólk fer að dæma myndina mjög hart fyrir það spurjið ykkur "er HÆGT að gera SUPERMAN mynd án þess að hafa smá klisju og smá drama??" ... ég efast um það
og þess vegna var ég bara ágætlega sátt við útkomuna á þessu öllu saman ... þar með er það upptalið .... ahh .. nema það að ég þjáist af alvarlegri veiki sem kallast "langaraðfarasuður" veikin ... langar ekkert að láta mér batna en ég gæti þurft þess svo að geðheilsan fari ekki í leiðinni ..
sjáum hvernig það gengur
ţvílík helgiSara Ósk Halldórsdóttir
Þá er maður loksins að gefa sér tíma til að blogga aftur
Fór suður á laugardagsnóttina... Það var svaka stuð hjá mér því að ég átti fyrst ekki að geta lagt af stað fyrr en klukkan 5 um morgunin eftir vinnu en pabbi varð pínu sveigjanlegur við mig og leyfði mér að klára skúringarnar yfir föstudaginn
Þannig að ég var í raun og veru að losna úr vinnunni rétt upp úr 12 og svo brunaði maður bara heim með lyklana og stökk út í bíl og brunaði suður

Arnar, sem átti ekki von á því að ég kæmi fyrr en um 9 leitið á laugardeginum, ætlaði að skilja eftir ólæst heima hjá sér svo að ég gæti skriðið í holuna hans og fengið mér smá lúr
... en um 5 leitið hringi ég auðvitað í hann og alveg grááátbað
hann að taka dyrnar úr lás
... auðvitað endaði hann á því að fara niður að dyrunum, frekar pirraður
.... en þegar hann opnaði dyrnar og sá mig standa fyrir utan
hehe ... VÁ ! .. svipurinn var svo rosalegur að ég DAUÐSÁ eftir því að hafa ekki haft poloroid vélina uppi !!Svo var náttúrulega bara chillað þar til Arnar fór í vinnuna og ég svaf kannski nokkra tíma ... prófaði að hringja í Kobbu frænku og það fyrsta sem hún sagði í símann var "Ég er ENNÞÁ sofandi ég hringi í þig ÞEGAR ég vakna!!" ... ég alveg uhh ... ok
... Klukkan var samt alveg orðin 12
Ég var alveg að hringja á kristilegum tíma!! ... En ég þaut bara í heimsókn til ömmu og afa og við skemmtum okkur konunglega ... þar til ég þaut svo að reyna að ná strætónum hans Arnars
Því þá ætluðum við að fara að heimsækja Púka litla, Chubby og Trítlu ...Auðvitað fékk ég að halda á báðum hvolpunum ... Arnar fékk að gefa Púka litla
En það var aaaaalgjört æði ... En svo var æðislegasti kærasti í heimi (Arnar) búinn að kaupa miða á Footloose
Við fórum á Kringlukrána fyrst og fengum geeeeeeðveikt góðan mat og svo var bara heavy fílingur á Footloose 
Svo fórum við tiltölulega snemma að sofa á laugardagskvöldið ... á okkar mælikvarða auðvitað

Sunnudaginn fengum við aðeins að sofa út því að Arnar átti ekki að byrja að vinna fyrr en eitthvað um 10 leitið ... En Sara litla fékk hund til að passa þar til Arnar væri búinn í vinnunni ... heitir hann Bassi og er eitthvað hreinræktað franskt ... greyið hundurinn hætti ekki að væla og spangóla
auk þess að hann strauk smá frá mér þegar ég fór með hann út að labba !! ... En mér skilst að hann sé duglegur að væla sama hvar hann er ... þannig að það þýði ekki að ég hafi verið að fara illa með hann
(auðvitað náði ég hundinum svo og hélt bara á honum heim fyrir óþægðina!)Þrátt fyrir pössunina skrapp ég með Kobbu í Vegamót og þar heimtaði hún að ég fengi mér Brunch (þrátt fyrir að klukkan var orðin 13 og yfirleitt fær fólk sér Brunch milli 10-12) ... Var það bara mjööööög gott
Komum við heima en skruppum svo stutt í Nauthólsvíkina af því að það var auðvitað besta veður eeever ... En það kemur í ljós þegar Arnar kemur heim um 5 leitið að hann var búinn að vinna klukkan 4 ! Mamma hans hafði tekið við seinasta hringnum svo að hann gæti eytt meiri tíma með mér!
hehe ... bara synd að það skyldi ekki virka, hann kom auðvitað heim að læstu húsi, síminn minn var ný orðinn batteríslaus þannig að hann náði ekki sambandi við mig ... pffff... Svo dreif ég hann á Subway um kvöldið og beint í VIP í álfabakkanum
á The Break Up og fannst mér það alveg ágætis mynd ... mér fannst drama hlutinn í endann full langur ... en fínasta mynd samt sem áður
Mánudaginn var lagt í leiðangur ... ég kom við í búðinni hennar ömmu af því að ég þurfti að kaupa nokkra hluti og ætlaði í leiðinni að leyfa þeim að hitta Arnar en þá var bara enginn heima ... spjölluðum bara við Kobbu niðrí búð aðeins ... og Tanja (Tatiana) gerði við bangsann hennar Sigrúnar fyrir mig
hún á auðvitað stærsta knús í heimi skilið fyrir 
Fór í Bókasölu Stúdenta að athuga hvort þeir ættu ekki eitthvað af bókunum sem mig vantar fyrir skólann og jújú ... fann eitthvað

En það kemur svo í ljós að Arnar hefur miklu meiri þolinmæði en ég fyrir shopping
... ég var löngu orðin viðþolslaus á meðan hann var bara ennþá að dunda sér í að skoða 
Brunaði norður ... fór að vinna ... og mánudagsnóttin var mjööööög falleg... fallegasta nóttin sem ég hef séð af þessu sumri

... merkilegt ... fékk ekki heimild á sparisjóðskortið mitt um daginn þrátt fyrir að 19.000 kall sé inn á reikningnum... hringdi í sparisjóðinn í dag og fékk þær upplýsingar að kortið hefði verið eyðilagt 10. febrúar... uhm ... right! Ég er með það í HÖNDUNUM!! ... hehe
en auðvitað var því reddað eins og skot
Litlar Trítlur !!Sara Ósk Halldórsdóttir
jiiiiiiiii ... alveg 11 dagar síðan ég bloggaði seinast !!
.... ég greinilega ekki nógu dugleg við þetta
ohh jæja... það er svo sem ýmislegt búið að vera í gangi ... Unnsteinn er kominn aftur
Unnsteinn er kominn aftur
!! ... Ég er bara hamingjusöm með það
Hann er einn af skemmtilegu gaurunum í Vífilfelli og hann var í sumarfríi ... ég er alveg feitast búinn að sakna hans
Það er bara HUNDLEIÐINLEGT að fara í gegnum nóttina án þess að eiga almennilegar samræður við nokkurn mann... og næstu nótt þá ætla ég að eyða alveg heilum klukkutíma í að spjalla við hann, hvað hann gerði í fríinu og svo framvegis 
Amma og afi keyptu sér bústað rétt hjá Dalvík sem að ég fékk að skoða um daginn og er hann bara ágætur
... frekar lítill en það á að byggja annað hús sem verður með herbergjum, sturtu og klósetti ... því fjölskyldan er svo stór 
Fór í heimsókn til ömmu og afa í Borgarnesi ... fékk afmælisgjöf frá þeim
og keyptu þau hana í verksmiðju í Kína
það er armband með Jade-steinum ... alveg geeeeeðveikt ... Svo kíkti maður aðeins í Munaðarnes... Arnar fór líka auðvitað og var allt PÍNULÍTIÐ þar... það sem þeir kalla stóran bústað er 1 herbergi með hjónarúmi og 1 herbergi með 2 kojum, pínulitlu eldhúsi og aggaponsu stofu !! .... það kalla þeir STÓRT !!
En auðvitað var bara gert gott úr stöðunni... farið nokkrum sinnum í heita pottinn ... auðvitað reddaði Arnar sjónvarpsefni handa okkur því að ekki var sjónvarpsdagskráin skemmtileg um helgina! ... a.m.k. var efnið hjá Arnari álitlegra
Arnar er alveg heppnasti gaur á lífi núna
ekki bara var Trítla (chihuahua hundur mömmu hans) að gjóta 2 undurfallegum hvolpum !! ... Heldur var köttur sem býr heima hjá honum og eignast kettlinga !! ohh ... ég gæti engan vegin verið meira abbó
næst þegar ég fer suður ætla ég svoooo að fá að sjá kettlingana og hvolpana ... Hægt er að sjá myndir af Trítlu í "myndir" 
En það eru stórar líkur á því að Arnar fái að eiga annan hvolpinn !!

Ahh
svo á Arnar afmæli í dag ! ... Til hamingju elskan!! 
Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Aaaaaaaarnaaaar! Hann á afmæli í dag! ...
Hann er ... uhm... let's skip that part
híhí ... neinei bara djóóóók... en það er bara stór afmæli 25 ára takk fyrir
er að reyna að sannfæra kallinn um að halda upp á þetta en það gengur brösulega ! ... hugmyndir eru vel þegnar 
Ooooog mig langar geðveikt að fara suður næstu helgi ... Ég ætla að reyna að fara suður næstu helgi, ég get farið ef að pabbi getur séð einn um öryggismiðstöðina ... og það gengur upp svo lengi sem að það kemur ekki inn auka vinna útaf pollamótinu .... sjáum til hvernig það fer!
Allir að krossa fingur svo að ég komist suður! hehe

p.s. hægt er að sjá mynd af Púka í "myndir" undir filnum með Sarínu og Trítlu!
HA - damaSara Ósk Halldórsdóttir
Jújú ... ég er komin inní Háskólann á Akureyri og byrja næsta haust við sálfræði...
Er ég nú bara mjöööög sátt við það allt saman... Maður fékk alveg formlegt bréf heim og læti bara ! Var að enda við að ganga frá umsókninni um námslán ...
Svo var ég líka að láta yfirmanninn vita hvernig myndi henta mér að hafa vinnuna í haust

Ef að allir verða sáttir við planið sem var komið upp hjá mér og pabba áðan þá á ég ábyggilega eftir að hafa ágætlega upp úr þessu öllu saman...

Er búin með bók 2 í Dalalíf og er þegar komin með fráhvarfs-einkenni .... ekki er það gott .... þarf að finna útúr því hvernig opnunartíminn á bókasafninu er!!
Næstu helgi þá á ég eftir að kíkja eitthvað í Munaðarnes í bústað með mömmu, Böðvari, Sigrúnu, Jenný Heiðu og Gunnari Bjarka og Arnar kíkir vonandi eitthvað á mig
þar sem Munaðarnes er ekkert svo langt frá Reykjavík ! ... Það verður ábyggilega frekar þröngt
... en þröngt mega sáttir sitja ! ... Fæ LOOOOOKSINS almennilegt helgarfrí !! ... Ohh sure, ég er að vinna í kvöld og í nótt ... EEEENN ég fæ frí laugardags og sunnudagsnótt
ohh hvað ég er ógeðslega sátt við það að fá fyrsta skipti í 2 vikur almennilegt frí frá vinnu ! ...Guðný er núna komin í mat til okkar og flýgur suður seinna í kvöld... en ég er að hugsa um að sjá hvort að það sé ekki hægt að plata útúr henni eina bollaspá

p.s. varðandi könnunina hvort að fólk segir frekar ógó eða ógjó sem styttingu á ógeðslega þá hafði ÓGÓ sigur úr bítum ... enda í Arthúrs sögu sem heitir ÓGÓ pirró sýnt að GÁFAÐ fólk segir og notar ÓGÓ
hehe