Blond Bond!Sara Ósk Halldórsdóttir
Jújú ... auðvitað fór maður á nýjustu bond myndina ...Mér fannst töff að nýji bondinn sé blond

Það sem ég held að flestir missi af er að þetta á að vera fyrsta handritið og auðvitað byrjar þetta allt á því að Bond brennir sig á kvenmanni og hættir að treysta þeim ... jújú, hugsanlega hefðu þeir eitthvað getað stytt þetta svaka ástardrama en hey ... þetta var nú allt í lagi

Púki fór til dýralæknis um daginn og er við hestaheilsu
við þurfum reyndar að gefa honum ormalyf gegn ormum sem geta borist frá móður til hvolps. En við vitum ekki til þess að hann sé með neitt slíkt 
Svo var hann líka bólusettur ... OG
ÖRMERKTUR
... Keyptum svo JÓLASVEINA jakka handa Púka litla

jakkinn er með hettu með brúsk og öllu ! Svörtu belti og svona

Keyptum tannbursta handa Púka og nú verður hann tannburstaður reglulega

Þannig að það er alveg helling í gangi

Við Arnar fengum okkur að sjálfsögðu jóladagatal
og finnst það alveg æði !!Erum búin að kaupa eiginlega allar gjafirnar
man ekkert fleira í bili ... verð að fá að klára þetta bara seinna eða eitthvað ... hehe
SÓH
