Mallorca ferđSara Ósk Halldórsdóttir
Jahá.... þetta blogg er búið að vera dáldið lengi dautt!!En núna er tilefni til að henda inn nokkrum orðum... við erum að fara til Mallorca!!
Ég og Arnar rúllum saman og höfum íbúð fyrir okkur :) - auk okkar verða:
Mamma og pabbi, Böðvar og Sigrún (systkini mín)
Gunni frændi (bróðir mömmu) og kona hans og Elsa dóttir þeirra :)
Þannig að þetta verður fjörug ferð með fullt af skemmtilegu fólki :D
Ætla alveg að sjá hvort að það sé ekki nettenging þarna úti og ef við erum svo heppin þá kannski fleygir maður inn orðum hérna inn á milli :)
Flýg út núna á miðvikudaginn og áætlaður komu tími til baka er 16 júlí :) 3 vikur beibí!
Jæja, ætla að fara að koma mér í rúmið, ýmislegt sem þarf að gerast á morgun ;)
adiós!
